Senda fyrirspurn
Fylltu út formið og sendu upplýsingar um farartækið.
Vetrargeymsla fyrir hjólhýsi og ferðavagna í Rangárþingi eystra
Fjallageymslur eru staðsettar í Neðri-Dal í Rangárþingi eystra, skammt frá Seljalandsfossi. Við bjóðum upp á rúmgóða innanhússgeymslu fyrir hjólhýsi, tjaldvagna, fellihýsi, húsbíla, ferðavagna, bíla og önnur tæki.
Geymsluhúsnæðið er um 2.500 m², þurrt og óupphitað, með steyptu gólfi.
Verðreiknivélar
Verð miðast við lengd farartækis í metrum og er lengd mæld með beisli. Veldu tegund farartækis og sláðu inn lengd.
Hvernig virkar þetta?
Fylltu út formið og sendu upplýsingar um farartækið.
Eigandi staðfestir að pláss sé tiltækt fyrir geymslu. Leigutaki sendir greiðslukvittun fyrir staðfestingargjaldi í heimabanka með skráningarnúmeri í skýringu.
Farartæki er skilað að hausti.
Veldu milli 1. maí eða 20. maí fyrir afhendingu á vorin.
Þú sækir farartækið á valinni dagsetningu.
Dæmi um verð
81.500 ISK
5 metrar97.800 ISK
6 metrar68.500 ISK
5 metrar82.200 ISK
6 metrarVerð miðast við lengd farartækis í metrum og er lengd mæld með beisli.
Fyrirspurn
Fylltu út formið hér að neðan og við munum hafa samband við þig eins fljótt og auðið er. Við biðjum þig um að senda greiðslukvittun fyrir staðfestingargjaldi í heimabanka eftir að við höfum staðfest að pláss sé tiltækt fyrir geymslu. Staðfestingargjald er 30.000 kr og óafturkræft.
Algengar spurningar
Já, öll geymsla er innanhúss og á steyptu gólfi.
Verð miðast við lengd farartækis í metrum. Lengd er mæld með beisli.
Boðið er upp á afhendingu samkvæmt fyrirfram ákveðnum tímum, til dæmis 1. maí eða 20. maí.
Já, eftir samkomulagi.
Skilmálar
Pöntun á leiguplássi skal fara fram í gegnum heimasíðuna www.fjallageymslur.is. Til að staðfesta pöntun formlega þarf að millifæra strax og pantað er staðfestingargjald að upphæð 30.000 kr á reikning 0182-26-412 kt: 500412-0110.
Pöntun telst ekki gild nema staðfestingargjaldið sé greitt. Staðfestingargjald er óafturkræft. Eftir móttöku á tæki er innheimtur endanlegur geymslukostnaður í heimabanka að frádregnu staðfestingargjaldi.
Leigutími á hjólhýsum, húsbílum, fellihýsum og tjaldvögnum er frá 1. september til 1. maí eða 20. maí. Fólk getur valið hvora dagsetninguna það vill sækja. Öll tæki skulu vera komin á staðinn og tilbúin fyrir geymslu í síðasta lagi 30. september nema að um annað hafi verið samið.
Leigusali sendir leigutaka tölvupóst með nánari upplýsingum um losunardaga, en slæm veður eða aðstæður geta haft áhrif á endanlega dagsetningu.
Leigutaki ber ábyrgð á fullnægjandi frágangi tækja vegna leigunar. Eftirfarandi atriði skulu uppfyllt:
Leigusali ber ekki ábyrgð á þeim tækjum sem eru í geymslu og bendir leigutaka á mikilvægi þess að viðkomandi tæki sé tryggt á geymslutíma hjá tryggingarfélagi viðkomandi fyrir hverju því tjóni eða slysi sem viðkomandi tæki getur orðið fyrir.
Leigutaki á ekki kröfu á leigusala vegna bilana á bruna- og öryggiskerfi hússins eða annarra aðstæðna sem geta komið óvænt eða af óviðráðanlegum aðstæðum upp, sem ekki er hægt að rekja til vanrækslu leigusala. Leigusali ber ekki ábyrgð á tjónum af völdum náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Leigutaki hefur ekki aðgang að geymslunum á leigutíma nema í samráði og undir eftirliti leigusala. Rísi mál vegna þessa leiguskilmála skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Fjallageymslur er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar hvort sem það eru eigin gögn eða gögn viðskiptavina. Í persónuverndarstefnu fyrirtækisins kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að starfsmenn, viðskiptavinir, aðrir viðsemjendur og einstaklingar séu upplýstir um hvernig fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Fjallageymslur vinnur eða meðhöndlar persónuupplýsingar sem fyrirtækið safnar ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili. Fyrirtækið hefur aðsetur að Neðradal, 861 Hvolsvöllur, og er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið fjallageymslur@gmail.com.
Þeim upplýsingum sem fyrirtækið safnar um viðskiptavini er fyrirtækinu skylt að varðveita í samræmi við lög og reglur, samninga, samþykki hins skráða eða vegna annarra lögmætra hagsmuna ábyrgðaraðila. Fjallageymslur safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína í þrennskonar tilgangi; til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði skilmála, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.
Fjallageymslur nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Fyrirtækið geymir aldrei persónuupplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir í samræmi við ákvæði skilmálana. Fyrirtækið miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila.
Fjallageymslur leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta. Fyrirtækið tryggir að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
Útgáfa persónustefnu dagsett 23. ágúst 2026